Skip header
BERGMÁL
KALEO
BERGMÁL

BERGMÁL

Stórhátíð á sumarsólstöðum
06/20/2026
Sat 10:00 AM
Þingvellir National Park
801 Selfoss
Iceland

Direct link to book parking spots.

(English below)

BERGMÁL tónleikahátíð fer fram á sumarsólstöðum, 20. júní 2026, í einstöku umhverfi Þingvallaþjóðgarðs.

KALEO stíga á svið á Þingvöllum ásamt völdum hópi listamanna. Með þeim kemur fram öflugt úrval íslenskra tónlistarmanna, þar á meðal Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK og Árný Margrét – ásamt fleiri góðum gestum.

Dagskrá

Valhallarsvið: 11:00–18:00 – Sérstök barna- og fjölskyldudagskrá

Dynberg: 14:00–24:00 – Aðalsvið

Miðaverð

Aðgöngumiði: 23.990,- Almennir miðar veita aðgang að öllum almennum svæðum hátíðarinnar og tónleikum.

Gull aðgangur, uppfærsla: 49.990,- ATH! Fyrir þau sem eiga nú þegar miða. Gull aðgangur, fullt verð 73.990,- ATH! Fyrir þau sem eiga ekki miða á tónleikana.

Innifalið í Gullaðgangi:

• Sérinngangur inn á hátíðarsvæðið

• Bergmáls taupoki í takmörkuðu upplagi

• Aðgangur að Gullsvæði með:

– Setustofu og þægilegri aðstöðu

– Betri salernisaðstöðu

– Einkabar með sérstökum drykkjarseðli

– Hleðslustöðvum fyrir síma

– Og fleira

Aðkoma og samgöngur

Gestir eru hvattir til að nýta sér skipulagðar rútur sem hægt er að bóka hér á síðunni(opens in a new tab). Bílastæði eru á Leirum, við Tæpastíg og Brúsastöðum. Ef komið er á einkabíl er mælt með að sameinast í bíla til að draga úr umferðarálagi.

Nánari upplýsingar má finna hér.(opens in a new tab)

Sjá kort af svæðinu í myndasafni hér að neðan.

Mikilvægar upplýsingar um bílastæði

Að Leirum og Tæpastíg standa til boða niðurgreidd stæði fyrir fólksbíla frá kl. 10:00 um morguninn.

Stæðin þarf að rýma eigi síðar en kl. 03:00 aðfaranótt sunnudagsins 21. júní.

Verð fyrir allan tímann er einungis 1.000 kr. + 490 kr. þjónustugjald (alls 1.490 kr.). Í verðinu er innifalin leiðsögn og skutluþjónusta frá bílastæði að inngangi Bergmáls, sem og skutl frá Haki til baka eftir tónleika.

Athugið: Til að komast á þessi stæði þurfa gestir að mæta fyrir kl. 16:00.

Bílastæði við Brúsastaði eru í boði fyrir þá sem mæta síðar, eftir kl. 16:00.

Einnig þarf að rýma þau stæði fyrir kl. 03:00 aðfaranótt sunnudagsins 21. júní.

Verð er 4.950 kr. með þjónustugjöldum inniföldum.

Leiðsögn og skutluþjónusta til og frá inngangi Bergmáls er innifalin.

Athugið: Við mælum eindregið með því að nýta sætaferðir sem ganga fram og til baka frá kl. 10:00.

Verð fyrir fram og til baka er 8.900 kr.

Hægt er að kaupa bílastæði og rútumiða í sama kaupflæði og aðgöngumiða á tónleikana.

Beinn tengill á kaupa bílastæðum.(opens in a new tab)

Verum ábyrg

Fyrir þá sem ekki geta nýtt sér sætaferðirnar mælum við eindregið með því að ferðast saman og fylla bíla eins og kostur er. Það dregur úr umferð og minnkar líkur á töfum vegna mikils álags.

Verndun þjóðgarðs

Af hverjum seldum miða renna 2.000 kr. beint til Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Með kaupum þínum styður þú við verndun og uppbyggingu eins merkasta náttúru- og menningararfs Íslands.

English version:

BERGMÁL Music Festival takes place on the summer solstice, June 20, 2026, set within the extraordinary landscape of Þingvellir National Park – just 40 minutes from Reykjavík.

Located between the drifting tectonic plates of North America and Eurasia, Þingvellir is not only a UNESCO World Heritage Site, but also the historic heart of Iceland, where the nation’s parliament was founded over a thousand years ago.

KALEO headline BERGMÁL at Þingvellir, joined by a handpicked group of artists. The lineup features some of Iceland’s most celebrated musicians, including Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK, and Árný Margrét – with more special guests to be announced.

Program

Valhalla Stage: 11:00–18:00 – Family-friendly daytime program

Dynberg: 14:00–24:00 – Main stage

Tickets

General admission: 23.990,- ISK Access to all general festival areas and performances.

GOLD, upgrade: 49.990,- Only for current ticket holders. GOLD (admission + GOLD upgrade): 73.990,- Festival ticket + GOLD upgrade.

Getting there

To book organized bus transport, use this link(opens in a new tab). Parking is available but if arriving by car, please share rides to help reduce traffic.

For more details, visit our information page.(opens in a new tab)

(opens in a new tab)See a map of the festival area in the gallery at the bottom of this page.

Car Rental in Iceland

For a smooth and dependable journey, we recommend booking your rental car(opens in a new tab) with our trusted partner, Blue Car Rental(opens in a new tab).

Important Parking Information

Subsidized parking for standard cars is available at Leirar and Tæpastígur from 10:00 AM.

All vehicles must be removed by 03:00 AM on Sunday, June 21.

The total price is ISK 1,490 (ISK 1,000 + ISK 490 service fee).

Included: guided access and shuttle service from the parking area to the Bergmál entrance, as well as return shuttle service from Haki after the concert.

Please note: To access these parking areas, guests must arrive before 4:00 PM.

Parking at Brúsastaðir is available for guests arriving later, after 4:00 PM.

These spaces must also be vacated by 03:00 AM on Sunday, June 21.

The total price is ISK 4,950 (including service fees).

Guided access and shuttle service to and from the Bergmál entrance are included.

Please note: We strongly recommend using the round-trip shuttle service, operating from 10:00 AM.

Price: ISK 8,900 round-trip, available in the same checkout as the concert ticket.

Direct link to buy parking. (opens in a new tab)

Be responsible

If you are not using the shuttle service, we strongly encourage carpooling to reduce traffic and delays due to high demand.

Conservation of the national park

With every ticket sold, ISK 2,000 goes directly to Þingvellir National Park. Your purchase supports the preservation and continued care of one of Iceland’s most important natural and cultural heritage sites.

Video

BERGMÁL
Þingvellir National Park
06/20/2026
Sat 10:00 AM
Þingvellir National Park
801 Selfoss
Iceland