MOMENT Iceland

Data privacy policy

MOMENT Iceland

(English below)

MOMENT leggur áherslu á persónuvernd og öryggi gagna þeirra sem nota kerfið.

Í þessari stefnu er útskýrt í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað, hvernig þær eru notaðar og hvernig við tryggjum öryggi þeirra.

Markmið okkar er að allir notendur, viðburðahaldarar og samstarfsaðilar viti hvernig við vinnum með persónuupplýsingar.

Ábyrgð

Margir steinar ehf. er rekstraraðili miðasölukerfisins MOMENT (moment.is) og ber ábyrgð á þeirri vinnslu sem lýst er hér.

Í sumum tilvikum vinnur MOMENT þó persónuupplýsingar fyrir hönd viðburðahaldara sem notar kerfið til að selja miða.

Viðburðahaldari er þá ábyrgðaraðili vinnslunnar og MOMENT vinnsluaðili samkvæmt vinnslusamningi.

Ef þú hefur spurningar um meðferð persónuupplýsinga eða vilt nýta réttindi þín, sendu okkur póst á moment@moment.is

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

MOMENT safnar aðeins upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu og uppfylla lögbundnar skyldur.

Við vinnum m.a. með eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang.
  • Kennitölu (ef við á, t.d. fyrir reikninga eða endurgreiðslur).
  • Upplýsingar um pöntun og greiðslu (t.d. miðanúmer og kvittanir).
  • Tæknilegar upplýsingar úr kerfinu (t.d. IP-tölur, vafrar og kökur).
  • Samskipti við þjónustudeild eða viðburðahaldara.

Upplýsingar eru notaðar til að:

  • tryggja afhendingu miða og annarra vara,
  • senda staðfestingar og þjónustutengdar upplýsingar,
  • veita þjónustu og svara fyrirspurnum,
  • bæta virkni kerfisins og notendaupplifun,
  • uppfylla lagaskyldur samkvæmt bókhalds- og persónuverndarlögum.

Ef þú skráir þig á póstlista eða samþykkir markpóst færð þú einungis slíkar sendingar meðan samþykki þitt er virkt. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Miðlun persónuupplýsinga

MOMENT miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema í eftirfarandi tilvikum:

  • Til viðburðahaldara sem selur viðkomandi viðburð.
  • Til þjónustuaðila sem vinna fyrir okkar hönd (t.d. greiðslugáttir, hýsing eða tölvupóstþjónusta).
  • Til stjórnvalda eða dómstóla ef lög krefjast.

Allir sem fá aðgang að gögnum fyrir hönd MOMENT eru bundnir trúnaði og skyldugir til að fara eftir persónuverndarlögum.

Öryggi gagna

MOMENT tryggir að allar persónuupplýsingar séu varðveittar á öruggan hátt.

Við notum þar á meðal:

  • dulkóðaðar slóðir (HTTPS),
  • öruggar greiðslugáttir,
  • aðgangsstýringar og trúnaðarskyldu starfsmanna,
  • reglulegar öryggisprófanir og endurskoðanir.

Varðveislutími

Persónuupplýsingar eru geymdar svo lengi sem nauðsyn krefur til að uppfylla tilgang vinnslunnar eða lögbundnar skyldur.

Eftir þann tíma eru gögn annað hvort eytt eða dulkóðuð.

Reiknings- og bókhaldsgögn eru þó varðveitt í allt að sjö ár samkvæmt lögum.

Vefkökur

MOMENT notar vefkökur (cookies) til að tryggja virkni og bæta upplifun notenda.

Nauðsynlegar kökur tryggja eðlilega virkni vefsins.

Tölfræði- og markaðskökur eru aðeins notaðar með samþykki.

Breytingar á persónuverndarstefnu

Persónuverndarstefna MOMENT er endurskoðuð reglulega og nýjustu úgáfu má finna hér á vefnum.

Ef gerðar eru verulegar breytingar á stefnu okkar verður það tilkynnt á vefnum.


Privacy Policy

MOMENT places strong emphasis on the privacy and security of data for all system users.

This policy explains why we collect personal data, how we use it, and how we ensure its security.

Our goal is for all users, event organisers, and partners to understand how we process personal data.

Responsibility

Margir steinar ehf. operates the MOMENT ticketing system (moment.is) and is responsible for the data processing described here.

In some cases, however, MOMENT processes personal data on behalf of event organisers who use the system to sell tickets.

In such cases, the event organiser is the data controller, and MOMENT acts as the data processor under a data processing agreement.

If you have questions about the handling of personal data or wish to exercise your rights, please contact us at moment@moment.is.

Collection and Processing of Personal Data

MOMENT only collects information necessary to provide services and comply with legal obligations.

We process, among other things, the following information:

  • Name, email address, phone number, and address
  • National ID number (where applicable, e.g. for invoicing or refunds)
  • Order and payment information (e.g. ticket numbers and receipts)
  • Technical system data (e.g. IP addresses, browsers, and cookies)
  • Communication with customer support or event organizers

Use of Information

Personal data is used to:

  • ensure delivery of tickets and other products
  • send confirmations and service-related information
  • provide customer service and respond to inquiries
  • improve system functionality and user experience
  • comply with legal obligations, including accounting and data protection laws

If you subscribe to a mailing list or consent to marketing communications, you will only receive such communications while your consent is active. You may unsubscribe at any time.

Sharing of Personal Data

MOMENT does not share personal data with third parties except in the following cases:

  • With the event organizer responsible for the relevant event
  • With service providers acting on our behalf (e.g. payment processors, hosting providers, or email services)
  • With authorities or courts where required by law

All parties granted access to data on behalf of MOMENT are bound by confidentiality and required to comply with data protection laws.

Data Security

MOMENT ensures that all personal data is stored securely.

We use, among other measures:

  • encrypted connections (HTTPS)
  • secure payment gateways
  • access controls and staff confidentiality obligations
  • regular security testing and audits

Data Retention

Personal data is retained only as long as necessary to fulfil the purpose of processing or comply with legal obligations.

After that period, data is either deleted or anonymised.

Accounting and financial records are retained for up to seven years in accordance with legal requirements.

Cookies

MOMENT uses cookies to ensure functionality and improve user experience.

Necessary cookies are required for the proper functioning of the website.

Analytics and marketing cookies are only used with consent.

Changes to the Privacy Policy

MOMENT’s privacy policy is reviewed regularly, and the latest version is always available on this website.

If significant changes are made, they will be announced on the website.