
Claude á Íslandi: tveggja daga „hands-on“ hagnýtt AI-námskeið fyrir fyrirtæki og fagfólk
Tveir morgnar þar sem Claude er settur upp fyrir þína vinnu: á þinni tölvu, í þínum skjölum og eftir þínum ferlum. Þú ferð heim með verkfæri sem nýtast strax og plan fyrir næstu 30 daga.
Ég hef kennt yfir 300 manns á Claude og starfsfólk frá yfir 100 fyrirtækjum hefur setið námskeiðin mín. Fyrstu tvö tveggja daga námskeiðin seldust upp.
„Frábært námskeið, langt umfram væntingar! Ari er með þeim bestu sem ég hef setið hjá, kristaltær og drífandi, og lét okkur byggja alvöru tól og skill sem keyra núna í rekstrinum. Mæli hiklaust með Ara og GoFlowtics.“ Sigurjón Gísli, Icefish Consult
Fólki sem vinnur með skjöl, tölvupóst, tölur og verkefni sem endurtaka sig, og vill sjá hvað Claude getur gert í þeirra eigin gögnum. Stjórnendum sem þurfa að vita hvernig Claude er innleiddur í fyrirtæki, með stefnu og skýrum reglum.
Þú þarft ekki að hafa notað Claude áður, því fyrri morguninn byrjar á grunninum.
- Stillingarnar, öryggið og gögnin þín: hvað má fara inn í Claude, hvaða áskrift hentar og hvernig þú flytur minnið með þér úr öðru gervigreindartóli
- Hvernig þú biður um verk þannig að niðurstaðan sé nothæf, og hvernig þú metur svarið áður en þú treystir því (prompt engineering og context management)
- Hvaða líkan á að nota í hvað: sama verkefnið keyrt á Haiku, Sonnet og Opus, og hvenær Thinking effort og Research borga sig
- Claude tengdur við kerfin sem þú notar, og þú setur upp þína fyrstu tengingu (tengingar og MCP)
- Lítil tól og mælaborð búin til úr þínum eigin tölum (Artifacts)
- Þitt eigið vinnusvæði í Claude, með þínum leiðbeiningum og gögnum (Projects)
- Claude inni í Excel, PowerPoint og Word, á þínum eigin skjölum (Office-viðbæturnar)
- Claude sem vinnur með þér á vefsíðum (Claude í Chrome)
- Claude vinnur beint í möppunum þínum, og þú setur upp möppu með eigin reglum sem hann fer eftir (Cowork, Claude Desktop og CLAUDE.md)
- Þú tekur ferli sem þú vinnur aftur og aftur og smíðar úr því skill, svo Claude vinni það eins í hvert sinn (Skills)
- Tilbúnir pakkar sem þú setur upp og lagar að þínum verkfærum, og verk sem keyra sjálf á tilsettum tíma (Plugins og Scheduled Tasks)
- Mælaborð sem uppfæra sig sjálf (Live Artifacts í Cowork)
- Kynningar og one-pager í fagmannlegu útliti (Claude Design)
- Innleiðingin: 30 daga plan, hvað á heima í AI-stefnu fyrirtækisins, samantekt og spurningar
- Project, skills og möppu með þínum eigin reglum, sem þú smíðaðir sjálf/ur á námskeiðinu
- 30 daga innleiðingarplan þar sem ekkert skref tekur meira en 20 mínútur og þú mælir tímasparnaðinn
- Innleiðingarhandbók (PDF) með gagnaflokkun, rýnireglum og beinagrind að AI-stefnu fyrirtækisins
- Yfirlitsblað á einni síðu með því mikilvægasta
- Prompt-síðuna með öllum promptum námskeiðsins, sem lifir áfram
- Glærurnar af báðum dögum sem PDF
- Vottorð um AI-læsi sem skjalfestir þjálfunina þína
Ég heiti Ari Auðunn Jónsson og stofnaði GoFlowtics. Ég kenni á Claude og set hann upp inni í fyrirtækjum, svo það sem ég kenni kemur úr raunverulegum rekstri. Ég er með vottun frá Anthropic (Claude Certified Associate) og Google Cloud (Generative AI Leader).
- Taktu með þér fartölvu.
- Þú þarft Claude Pro áskrift (20 dollarar á mánuði) eða hærri, Max eða Team. Ókeypis útgáfan dugar ekki, því Office-viðbæturnar, Cowork og Research krefjast greiddrar áskriftar. Leiðbeiningar um uppsetningu berast viku fyrir námskeiðið.
- Námskeiðið er á íslensku.
- 15 sæti, svo allir fái aðstoð við sín eigin verkefni.
79.900 kr. á mann. 15% hópafsláttur þegar 3 eða fleiri miðar fara í körfuna (67.915 kr. á mann).
Mörg fyrirtæki greiða námskeiðið fyrir starfsfólkið sitt, svo það borgar sig að spyrja. Námskeiðsgjaldið er líka styrkhæft hjá mörgum stéttarfélögum og starfsmenntasjóðum. VR endurgreiðir til dæmis allt að 90%, en hlutfallið fer eftir félagsaðild þinni og reglum sjóðsins. Þú færð kvittun og staðfestingu á þátttöku til að sækja um. Styrkurinn nær til námskeiðsins, ekki Claude-áskriftarinnar, því hugbúnaðarkaup eru ekki styrkhæf hjá VR.
„Virkilega fagmannlegt og gott námskeið, gott utanumhald og góður hraði. Við fórum hópur frá vinnunni og á þetta eftir að nýtast okkur vel í starfi. Það hefur strax auðveldað okkur mörg verkefni og við erum spennt að halda áfram að vinna með þetta. Kærar þakkir fyrir okkur.“ Viktoría, Domino's
„Ég mæli eindregið með Claude námskeiði hjá Ara. Hann er virkilega fróður, útskýrir efnið vel og svarar öllum spurningum af mikilli þekkingu og vandvirkni. Endilega kíkið á námskeiðið ef þið viljið læra meira og nýta Claude til að auka skilvirkni í leik og starfi.“ Geir Kristinsson, GK Fjármál
„Námskeiðið var mjög ýtarlegt, skipulegt og vel upp sett, kennarinn gerði efninu mjög góð skil og svaraði öllum spurningum skýrt og greinilega. Ótrúlegt hvað var hægt að komast yfir mikið á stuttum tíma.“ Bjarni Jónsson
„Námskeiðið gaf góða innsýn í hversu öflugt verkfæri Claude er. Ég var að nota annað gervigreindartól fyrir námskeiðið en var snögg að færa mig yfir í Claude. Námskeiðið var vel sett fram, mikið af efni og gott að fá aðgang að efninu eftir að námskeiðinu lauk. Kennari bjó yfir mikilli þekkingu á verkfærinu og verklegu dæmin sem voru lögð fyrir voru gagnleg og auðvelt að tengja við.“ Júlía
„Ótrúlega mikið sem þú náðir að fara yfir og kynna okkur fyrir. Frábært að fá allt þetta efni til stuðnings þegar maður fer svo að grúska meira sjálfur í framhaldi. Nú er bara undir okkur komið að halda áfram!“ Halla, Corus
„Mjög gott og upplýsandi námskeið sem gerir mann öruggari í að nota gervigreindina.“ Andri Rafn, EFLA


