Skip header
Framhaldsnámskeið í Claude
Goflowtics
Framhaldsnámskeið í Claude

Framhaldsnámskeið í Claude

claude á íslandi.
07/14/2026
Tue 9:00 AM
Rafmennt
Stórhöfði 27
110 Reykjavík
Iceland
from ISK 0
Sold out
Return later to check if tickets are available again.

Fjögurra tíma verkleg vinnustofa fyrir þau sem kláruðu grunnnámskeiðið.

Á grunnnámskeiðinu lærðir þú að nota Claude. Í dag færðu að snííða hann að þér.

Þetta er framhaldið og það fer dýpra í það sem við náðum ekki að stoppa nógu lengi við síðast. Við endurtökum ekki grunninn hægar, heldur tökum hlutina sem fólk vildi meiri tíma í og vinnum þá með höndunum. Þú situr við þína eigin tölvu, byggir raunverulega hluti fyrir þitt fyrirtæki og ég aðstoða þig.

Við förum dýpra í það sem grunnnámskeiðið kynnti: artifacts og lifandi mælaborð tengd þínum eigin gögnum, skills sem er aðalhlutinn þar sem þú byggir þitt eigið, plugins og sjálfvirkni sem keyrir án þín.

Í þetta sinn leggjum við líka áherslu á möppuskipulag og samhengisskrár. Við tökum CLAUDE.md skrár almennilega fyrir. Þetta er ekki fyrir forritun heldur fyrir venjulega vinnu: einfaldar textaskrár í möppunni þinni sem gefa Claude fast minni um þig, þitt verkefni eða fyrirtækið þitt, svo þú þurfir ekki að útskýra sama hlutinn aftur og aftur. Rétt uppsett mappa er munurinn á Claude sem giskar og Claude sem veit.

Þú ferð heim með:

• Þitt eigið skill fyrir verkefni sem þú endurtekur, til dæmis tilboð, skýrslu eða svar í þínum tón

• Lifandi mælaborð tengt þínum gögnum og getuna til að smíða fleiri.

• Sjálfvirkni sem keyrir eftir að þú ferð heim

• Möppuskipulag og CLAUDE.md sniðmát sem gera allt þetta áreiðanlegt

• aðgerðaplan til að halda áfram.

Forkröfur (mikilvægt):

Þetta er verkleg vinnustofa, svo þú þarft að vera tilbúin(n):

• Greidd Claude áskrift, Pro hið minnsta og Max betra fyrir þyngri verkefni

• Cowork skjáborðsforritið uppsett og innskráð

• Fartölva og hleðslutæki, ekki spjaldtölva

Nánari undirbúningslisti kemur í tölvupósti um viku fyrir námskeiðið.

Hagnýtt:

• Dagsetning: 14. júlí 2026

• Tími: kl. 9:00 til 13:00, fjórar klukkustundir

• Staðsetning: sama og grunnnámskeiðið

• Verð: 34.900 kr

• Fjöldi: 12 sæti, fyrstir koma fyrstir fá

• Forkrafa: lokið fyrra námskeiði í Claude

Tickets start at
ISK 0
Framhaldsnámskeið í Claude
Rafmennt
Sold out
Return later to check if tickets are available again.
07/14/2026
Tue 9:00 AM
Rafmennt
Stórhöfði 27
110 Reykjavík
Iceland
from ISK 0

Other events of Goflowtics