
Innipúkinn 2026
😈 Álfgrímur 😈 Amor Vincit Omnia 😈 Elín Hall 😈 Emmsjé Gauti 😈 Flesh Machine 😈 FM Belfast 😈 GDRN 😈 Geisha Cartel 😈 gugusar 😈 HASAR 😈 Izleifur 😈 Joey Christ + Gestir 😈 KUSK & Óviti 😈 lára 😈 MÚR 😈 Retro Stefson 😈 Sudden Weather Change 😈 tatjana
Innipúkinn hefur löngum verið griðastaður þeirra sem kjósa malbik fremur en útileguna um verslunarmannahelgina. Í ár ætlum við okkur enn stærri hluti og dagskráin endurspeglar fjölbreytni og kraft sem einkennir íslenska tónlistarsenu í dag. Partíbönd, danstónlist, rokk og ról mæta öll spennt, hress, þurr og pínu full.
Hér þarf engan prímus eða gúmmístígvél, bara mæta með góða dansskó og fá sér einn ískaldan Gull Lite fyrir stærsta innipartí ársins. Svo leggjast allir í þægilegt rúm og fá góðan nætursvefn áður en partýið heldur áfram í þrjá daga og þrjú kvöld.
Fjölbreyttir viðburðir fara fram í kringum Innipúkann, sem verða tilkynntir síðar.
20 ára aldurstakmark
Hönnun: Kosmonatka(opens in a new tab) x Hell Moonk(opens in a new tab)


