Skip header
 Jól og annað vesen!
RATA ehf.
 Jól og annað vesen!

Jól og annað vesen!

12/05/2026
Sat 7:00 PM - 10:00 PM
Segull 67 Brewery
Vetrarbraut 8-10
580 Siglufjörður
Iceland
from ISK 2,900

Jólin eiga að vera tími friðar og rólegheita. Einhvern veginn endum við samt á því að hlaupa sveitt um bæinn, rífast um jólaskrautið, gleyma að sinna næturlógistík jólasveinsins og reyna að muna hvað það var sem við áttum eiginlega að njóta.

Sambýlisfólkið Svava Björk Ólafsdóttir og Bjarni Þór Bragason blanda saman uppistandi, sögum og lifandi tónlist í nýrri jólasýningu þar sem íslenskar jólahefðir, Grýla, Jólakötturinn, jólasveinarnir, fjölskyldulífið, maturinn, sykurinn og rómantíkin í desember fá sinn skerf.

Bjarni reynir að halda uppi fallegri jólastemningu með tónlistinni á meðan Svava gerir sitt besta til að spyrja spurninganna sem enginn bað um.

Jól og annað vesen! er sýning fyrir alla sem elska jólin - og fyrir hina sem byrja að ofanda strax 1. nóvember.

Tickets start at
ISK 2,900
Jól og annað vesen!
Segull 67 Brewery
12/05/2026
Sat 7:00 PM - 10:00 PM
Segull 67 Brewery
Vetrarbraut 8-10
580 Siglufjörður
Iceland
from ISK 2,900

Other events of RATA ehf.