
Kaktus Einarsson - við flygilinn á Fantasíu
Kaktus Einarsson býður upp á einstaka og persónulega tónleika á Fantasíu fimmtudaginn 12. nóvember.
Þetta kvöld stígur Kaktus á svið í sinni einföldustu mynd, einn við flygilinn, og flytur lög af sólóplötum sínum í nýjum og nánum útsetningum. Í hlýlegu og notalegu umhverfi Fantasíu gefst gestum tækifæri til að upplifa tónlistina frá öðru sjónarhorni, þar sem lögin fá nýtt líf í eins konar sönglagastund.
Kaktus hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu í íslensku tónlistarlífi með fjölbreyttri tónlist sem ferðast óhikað á milli popps, tilraunamennsku og ólíkra tónlistarheima. Nýjasta plata hans, Factoid Happiness, kom út í september og hefur hlotið lof gagnrýnenda bæði hér heima og erlendis. Lög á borð við Glycerine hafa jafnframt hljómað títt á öldum ljósvakans, auk lagsins Follow, sem hann flytur ásamt John Grant.
Á tónleikunum má einnig eiga von á óvæntum gestum sem munu taka þátt í flutningnum. Því má búast við einstakri kvöldstund þar sem nánd, tónlist og óvænt augnablik verða í fyrirrúmi.


