
Luigi í Víkingsheimilinu
Luigi snýr heim þann 18. júní og boðar til stórtónleika í heimili uppeldisfélagsins Víkingi í boði Coke Cola og Thule til styrktar Ingvars Jónssonar.
Síðustu misseri hefur hann verið að vinna hart að glænýju plötunni “Leikurinn er Leikurinn” sem nú er komin út og verður frumflutt á tónleikunum.
Liðsaukinn verður ekki af verri endanum en Elvar og Saint Pete munu stíga á svið ásamt fjölmörgum leynigestum. Á tónleikunum verður treyju-þema og hvetjum við alla gesti til þess að koma í sinni bestu fótboltatreyju, Lui mun velja bestu treyjunna á tónleikinum sjálfum og verður frábær vinningur í boði.
Þetta eru síðustu tónleikar tónlistarmannsins í bili en hann hefur ákveðið að segja skilið við músíkina til að einbeita sér að boltanum.
Ath! Viðburðurinn er 18+


