
MOMENT - Söfnun fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru
Á hverju ári bætir MOMENT við ógleymanlegum augnablikum í minningabankann fyrir þúsundir gesta sem sækja Menningarnótt.
Í ár ætla DJ Margeir og MOMENT að bæta um betur og styrkja af öllu afli Minningarsjóð Bryndísar Klöru(opens in a new tab).
Ef þú ætlar að taka flugið með okkur á Menningarnótt og njóta augnabliksins til fulls getur þú þakkað fyrir þig með því að styrkja þetta hjartnæma og mikilvæga málefni.
Á moment.is getur þú tekið þátt og keypt styrktarmiða þar sem öll framlög (ekki bara ágóði) renna óskipt í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. DJ Margeir og MOMENT munu jafna öll framlög, krónu á móti krónu, allt að 500.000 krónum.
Eins og alltaf er aðgangur á MOMENT opinn öllum og ókeypis, í boði Icelandair.
Verndari Minningarsjóðs Bryndísar Klöru er Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
Ef þú kaupir styrktarmiða fer nafn þitt í pott og þú átt möguleika á vægast sagt glæsilegum vinningum frá veitingastöðum í nágrenni við MOMENT.
Vinningar
- Monkeys, fimm rétta kvöldverður fyrir tvo ásamt fordrykk
- KOL, sex rétta smakkferðalag fyrir tvo
- Bastard Brew & Food, botnlaus brunch fyrir tvo
- Lebowski Bar, gjafabréf að verðmæti 15.000 kr.
Kauptu styrktarmiða fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á moment.is og leggðu góðu málefni lið. Þú ert alltaf að fara að vinna!
Einu sinni ári gerast undursamlegir töfrar á Klapparstíg sem erfitt er að lýsa í orðum. Þúsundir sálna lifna til lífsins, upplýsast og svífa saman inn í undraheim danstónlistar undir fagmannlegri handleiðslu DJ Margeirs, sem ár hvert laðar að sér sífellt óvæntari og skemmtilegri gesti.
Í rúm tíu ár hafa ungir sem aldnir farið á hugljómandi flug á Moment á Menningarnótt, þar sem allir hafa leyfi til að sleppa af sér beislinu og gefa sig á vald guðdómlegra kærleikskrafta. Frjáls tjáning. Trylltir taktar.
Viðburðurinn litríki er ókeypis í boði Icelandair og allir eru velkomnir.
Borgarstjóri mun setja Menningarnótt á MOMENT sviðinu kl. 12:30 laugardaginn 22. ágúst.
„Menningarnótt mun alltaf hafa djúpa merkingu fyrir okkur, fjölskyldu Bryndísar Klöru. Þess vegna snertir það okkur þegar fólk ákveður að taka gleðina og kraftinn á Menningarnótt til að skapa eitthvað fallegt og kærleiksríkt í nafni Bryndísar. Við erum DJ Margeiri og öllum þeim sem taka þátt í MOMENT innilega þakklát. Við getum ekki breytt því sem gerðist, en saman getum við haft áhrif á það sem gerist næst.“
- Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru
„MOMENT er í raun einskonar dansmaraþon á Menningarnótt þar sem góð stemmning, ljós og kærleikur eru í fyrirrúmi. Okkur langar að nota þann kraft sem verður til á Klapparstígnum til góðs og hvetjum alla sem hafa notið augnabliksins með okkur í gegnum árin til að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Ég skora jafnframt á aðra öfluga aðila sem hafa sett svip sinn á Menningarnótt í gegnum árin að finna leið til að styðja við þetta góða málefni. Ef við öll leggjumst á eitt getum við látið hátíðina snúast um meira en skemmtunina eina og skapað raunveruleg, jákvæð áhrif.“
- DJ Margeir
Þegar Menningarnótt lýkur tekur við MOMENT eftirpartý í Iðnó, í samvinnu við Celebration of US, þar sem 300 dansþyrstir einstaklingar munu halda gleðinni á lofti inn í nóttina.
Ath! Aðeins 300 miðar í boði.
Þessir listamenn koma fram í Iðnó:
- DJ Margeir & gestir
- Exos (live)
- Magugu
- Þorgerður
- Oculus
- Bellamix69
- Lísbet Rós
Tryggðu þér miða hér: -> https://tickets.moment.is/event/moment-a-menningarnott-afterparty-cq2ua5(opens in a new tab) <-


