Skip header
Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar í Perlunni
Krabbameinsfélag Íslands
Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar í Perlunni

Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar í Perlunni

Bleika slaufan fylgir hverjum miða
09/30/2026
Wed 7:00 PM
Perlan
Öskjuhlíð
105 Reykjavík
Iceland
from ISK 8,900
The sale has ended

Tryggðu þér miða á Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Perlunni 30. september.

Vertu með okkur á einstöku kvöldi þegar við fögnum saman upphafi Bleiku slaufunnar, árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins gegn krabbameini hjá konum. Viðburðurinn verður haldinn í einu glæsilegasta kennileiti Reykjavíkur, Perlunni.

Húsið opnar kl. 17:30 og boðið verður upp á bleikan óáfengan fordrykk. Við hvetjum gesti til að mæta tímanlega til að skoða einstakar sýningar Perlunnar og heimsækja íshellinn áður en formleg dagskrá hefst kl. 19:00. Samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar verða á sínum stað og kynna og selja bleikar vörur til styrktar átakinu.

Tríóið Fjarkar taka á móti gestum með ljúfum jazz tónum á 5. hæðinni.

Stórglæsileg dagskrá hefst kl. 19:00 á sviðinu á 5. hæð.

Þar mun Forseti Íslands heiðra samkomuna með stuttu ávarpi, við frumsýnum auglýsingu Bleiku slaufunnar og nokkrar af skærustu tónlistarstjörnum landsins stíga á stokk:

  • Páll Óskar
  • Ragnhildur Gísladóttir og Halldór Gunnar
  • Sigríður Thorlacius
  • Valdimar

Ólafía Hrönn stýrir veislunni.

Dagskrá lýkur kl. 21:00 og húsið lokar.

Aðgangsmiði á opnunarhátíðina kostar kr. 8.900. Bleika slaufan fylgir hverjum miða og verður afhent við innganginn. Einnig er aðgangur að sýningum Perlunnar og íshellinum innifalinn í miðaverði.

Tryggðu þér miða og vertu með okkur á ógleymanlegu bleiku kvöldi í Perlunni!


Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein. Stuðningur einstaklinga og fyrirtækja er forsenda fyrir starfi félagsins, sem byggir alfarið á söfnunarfé.

Við hlökkum til að sjá þig í Perlunni þann 30. september.

Tickets start at
ISK 8,900
Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar í Perlunni
Perlan
The sale has ended
09/30/2026
Wed 7:00 PM
Perlan
Öskjuhlíð
105 Reykjavík
Iceland
from ISK 8,900

Other events of Krabbameinsfélag Íslands