
Spacestation
Hljómsveitin Spacestation fagnar útgáfu nýrrar plötu, „Who Killed Spacestation?“, með stórum útgáfutónleikum í Austurbæjarbíói þann 23. október. Platan kemur út 10. september og markar nýjan kafla í sögu sveitarinnar, uppgjör við fortíðina, endurfæðingu og allt það sem hefur mótað Spacestation síðustu ár.
Frá stofnun sveitarinnar árið 2021 hefur Spacestation skapað sér sterkan sess í íslensku tónlistarlífi. Fyrsta EP-plata sveitarinnar, „BÆBÆ“, hlaut Kraumsverðlaunin og í kjölfarið fylgdu meðal annars tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Reykjavík Grapevine Awards. Síðan þá hefur sveitin leikið víða um Evrópu og komið fram á hátíðum á borð við Iceland Airwaves, The Great Escape, SXSW, Reeperbahn og Waves Vienna.
Tónlist Spacestation svífur á mörkum draumapopps, shoegaze, indírokks og hrárrar rokktónlistar. Lög sveitarinnar einkennast af grípandi laglínum, þéttum gítarveggjum og kraftmikilli sviðsframkomu þar sem óreiða og nákvæmni mætast. „Who Killed Spacestation?“ fangar þróun sveitarinnar undanfarin ár, frá litlum tónleikastöðum í Reykjavík yfir í tónleikaferðir og hátíðir erlendis og er stærsta og metnaðarfyllsta verk hennar til þessa.
Á útgáfutónleikunum verður platan flutt í sérstökum búningi ásamt eldri lögum úr ferli sveitarinnar. Umgjörðin verður stærri en nokkru sinni fyrr og kvöldið verður sannkölluð hátíð fyrir nýtt tímabil í sögu Spacestation.
Hver drap Spacestation? Komið og komist að því í Austurbæjarbíói 23. október.


