
Svanurinn eftir Elizabeth Egloff
Tryggðu þér miða á bestu kjörunum („early bird“) með því að skrá þig á póstlista Silfurskeiðarinnar og Tjarnarbíós.
👉 Skráning hér(opens in a new tab)! 👈
Póstlistaforsala hefst: þri. 24. nóv. kl. 10:00. Almenn miðasala hefst: fös. 27. nóv. kl. 10:00 („Black Friday“)
- Frumsýning föstudagur 12.febrúar
- 2.sýning sunnudagur 14.febrúar
- 3.sýning þriðjudagur 16.feb
- 4.sýning fimmtudagur 18.febrúar
,,Ást þín getur frelsað mig og ég þrái að frelsast”
Dóra er hjúkrunarkona sem hefur verið einstaklega óheppin í ástum. Hún er ein heima seint um kvöld þegar Svanur brotlendir skyndilega inn um gluggann hjá henni. Dóra aumkar sig yfir þennan óvænta gest og tekur að hjúkra honum af alúð. Það fer heldur betur fyrir brjóstið á Kevin, kærasta hennar, sem er mjólkurpóstur bæjarins og þar að auki giftur annarri konu.
Ekki batnar ástandið þegar Svanurinn breytist í mann og fer að þvælast hálfnakinn um íbúð Dóru.
Úr verður einn ótrúlegasti ástarþríhyrningur sem um getur, þar sem afbrýðisemi, ástríður og óuppfylltar þrár takast á með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Svanurinn er einstaklega vel skrifað og heillandi leikrit þar sem húmor og viðkvæmni, ævintýri og hversdagsleiki fléttast saman. Áhorfandinn getur séð verkið sem nútímadæmisögu um þrá mannsins eftir ást, tengslum og frelsi – eða einfaldlega sem undurfagran draum um ástina eina.
Svanurinn sló rækilega í gegn þegar hann var síðast settur upp á Íslandi, þá með Ingvari E. Sigurðssyni, Maríu Ellingsen og Birni Inga Hilmarssyni í aðalhlutverkum. Nú verður spennandi að sjá nýja kynslóð leikara Kristínu Þorsteinsdóttur, Mími Pálmason og Nikulás Hansen Daðason gefa þessu einstaka verki byr undir báða vængi.
Höfundur: Elizabeth Egloff
Íslensk þýðing: Árni Ibsen
Leikstjóri: María Ellingsen
Aðstoðarleikstjóri: Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
Dramatúrgía: Kevin Kuhlke og Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson
Búningar: Íris Ólafsdóttir og Guðlín Theodórsdóttir
Sviðshreyfingar: Sóley Ólafsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Anna Róshildur
Leikarar: Kristín Þorsteinsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason og Nikulás Hansen Daðason.
Plakat og grafík: Ari Carl Lund
Ljósmyndir: Christopher Lund
Framleiðandi: Silfurskeiðin, leikfélag í samstarfi við Tjarnarbíó og Iðnó
Framkvæmdastjórn: Kristín Þorsteinsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason og Nikulás Hansen Daðason.
Sýnt með leyfi Nordiska ApS


