Skip header
Teitur Magnússon & Mýtlarnir á Leyni
MOMENT
Teitur Magnússon & Mýtlarnir á Leyni

Teitur Magnússon & Mýtlarnir á Leyni

Askur - Einstök uppskeruhátið!
Start
11/21/2026
Sat 9:00 PM
End
11/21/2026
Sat 11:30 PM
Leyni
Hafnarstræti 95
600 Akureyri
Iceland

Teitur Magnússon sendir frá sér nýja vínylplötu um þessar mundir er nefnist Askur og fagnar því með tónleikum víða um land.

Ekki missa af þessari einstöku uppskeruhátið - komdu fagnandi!

Öllu verður til tjaldað! Nýju lögin fá að hljóma auk þess sem talið verður í vel valda slagara af ferlinum í bland við sérvalin tökulög í rokkaðri kantinum.

Ásamt Teiti eru hinir alræmdu Mýtlar:

  • Birgir Ísleifur Gunnarsson (Motion Boys)
  • Orri Páll Dýrason (Sigur Rós)
  • Ingvi Rafn Björgvinsson (Oyama)

Þetta er fjórða sólóplata Teits síðan reggísveitin rómaða Ojba Rasta lagðist í dvala. Askur kemur í kjölfar: 27, Orna og 33 - en allar þrjár hafa hlotið: lof, prís og áheyrn fagurkera þessa lands.

Á Aski heldur tónheimur Teits áfram að þróast í lífræna átt: Folk, Popp, Rokk og Tropicalia í bland við íslenska texta úr fortíð og nútíð.

Þess ber að geta að upptökustjóri plötunnar, Hallberg Hallbergsson (Jakobínarína & Brian Jonestown Massacre), setti sterkan blæ á hljóm heildarverksins.

Lög af Aski hafa undanfarin misseri hljómað víða og fengið talsverða spilun. Má þar nefna lögin: Gullauga, Askur & Fjöllin og fjarlægðin sem rataði í fyrsta sæti Vinsældalista Rásar 2.

Platan fær gríðargóðar viðtökur og fengið vægast sagt glimrandi dóma hjá Menningarvakt Vísis og jákvæða plötugagnrýni Rásar 2. Dr Gunni teflir Aski fram sem plötu ársins (þangað til annað kemur kannski í ljós).

Tryggið ykkur miða á sérstöku forsöluverði fyrir þennan einstaka viðburð!

Hver veit nema Týndi Mýtillinn mæti 🖤(opens in a new tab)(opens in a new tab)

Video

Teitur Magnússon & Mýtlarnir á Leyni
Leyni
Start
11/21/2026
Sat 9:00 PM
End
11/21/2026
Sat 11:30 PM
Leyni
Hafnarstræti 95
600 Akureyri
Iceland